Thursday, October 17, 2013

Oktober


Héðan er allt fínt að frétta eins og venjulega. Foreldrar Daða eru í heimsókn og það er auðvitað skemmtileg tilbreyting og gaman að hafa félagskapinn. Við erum búin að hafa nóg að gera þessa viku sem þau hafa verið hér. Fórum í dýragarðinn og í kayakferð og fullt af búðum og svo auðvitað margsinnis á ströndina. Veðrið er búið að vera eins og best er á kosið og mikið búið að njóta sólarinnar.

Við vorum lengi búin að vera með það á prjónunum að kaupa okkur kayak eða einhversskonar bát. Það eru svo frábærar aðstæður til slíkrar iðkunar hérna í Vero Beach (og reyndar bara öllu Flórida) að það lá alltaf beint við að maður tæki þátt í einhverju vatnasporti. Eftir að við vorum búin að skoða verð og tegundir rákumst við á ódýra og þægilega uppblásna kayaka sem mér fannst upplagt að byrja á. 

Við erum búin að fara nokkurm sinnum og þeir reynast alveg ótrúlega vel miðað við allt. Við keyptum tvo tveggja manna þannig að við getum öll farið nema Iðunn auðvitað.

Fyrsta skipti sem við fórum út á bátunum fengum við reyndar smá sjokk þegar risa krókódíll maraði í hálfu kafi við hliðina á bátnum.  Ekkert sérstakt að vera í gúmmíbát með börnin sin og rekast á krókódíl :(   

Æ já það er svolítið öðruvísi raunveruleiki sem maður þarf að venjast hérna í FL þegar kemur að dýralífi. Einn morguninn þegar Birna Luna var að græja sig fyrir skólann opnar hún klósettið og risa hlunka froskur stekkur upp úr því. Hún kallaði auðvitað á okkur Daða, sem ennþá vorum sofandi, og við þyrluðumst upp úr rúminu. Eltingaleikurinn við klósettfroskinn tók dágóða stund í morgunsárið en hann hoppaði og klístraðist um alla veggi áður en ég náði að veiða hann í kökudós. 

í Síðustu viku var ég líka að leggja bílnum inn í bílskúr eins og ég geri svo oft þegar ég tek eftir einhverju sem lafir aftanúr afturdekkinu. Þegar ég skoða það nánar sé ég að það er snákur sem ég hef keyrt yfir og smurt svona skemmtilega eftir dekkinu á bílnum. Oj bara,,,,, ég bakkaði bílnum aftur út og reyndi að losna við þettta en endaði á því að þurfa að plokka restina af dekkinu.

Núna er það svo bara næst á dagskrá að skreyta fyrir Halloween og fara að undirbúa afmælið hennar Hönnu Siggu.

Ég keypti mér þennan fína vagn sem hægt er að festa aftaní hjólið
Iðunn hefur það voða gott í fína vagninum
Daði og Birna fóru á ródeó um daginn og það var auðvitað spes upplifun (Birnu fannst hún vera komin heim) 
Pumpkin og prinsessur fyrir utan Freshmarket
Dúllan mín alltaf svo fín 
Allir að stilla sér upp með graskerjunum
Birna að knúsa Iðunnina sína
Sætar systur
Verið að græja í kayakana
Flottir
Við Hanna Sigga líka flottar
Afinn er í miklu uppáhaldi hjá prinsessunni
Í dýragarðinum
Hanna Sigga fékk að greiða geit


Tuesday, September 24, 2013

Fréttir frá Flórida


Kannski ég skrifi örlítið um það sem í gangi er hérna hjá okkur og hefur verið að undanförnu.

Við fjölskyldan eyddum stórum hluta sumarsins heima á Íslandi í nýja fína húsinu okkar sem við keyptum í vor. Hmm já kannski frekar skrítið að kaupa sér hús (eftir að hafa leigt í Reykjavík í 10 ár) einmitt þegar maður er búsettur allt annarsstaðar í heiminum.  Við vorum bara svo lengi búin að vera að melta þessi húsakaup og svo þegar við rákumst á þetta fína risastóra hús í Viðjugerðinu í Reykjavík þá ákáðum við að ef á annað borð við ætluðum að kaupa okkur hús þá væri ekki eftir neinu að biða.

  
VIð höfðum það voðalega næs heima á Íslandi í sumar, bæði í nýja húsinu í Reykjavík og á mörgum ferðalögum okkar um landið. Við vorum full mikið á ferðalegi kannski og fórum t.d hringinn tvisvar á þessum tíma sem við voum heima.  Húsið í Reykjavík var auðvitað tómt þannig að það var svolítið erfitt að vera þar og ég held að við höfum ekki verið í Reykjavík nema kannski samanlagt í tvær vikur. 

Um miðjan ágúst pökkuðum við svo því litla dóti sem var á Íslandi og fundum þessa fínu leigjendur sem núna búa í húsinu. Sjálf flugum við fjölskyldan aftur hingað út til Florida þar sem stelpurnar byrjuðu í skólanum tveimur dögum seinna. Ég viðurkenni alveg að mig langaði ekkert að koma aftur hingað út heldur vildi bara flytja inn í fína húsið MITT og byrja á restinni að æfinni loksins í mínu eigin hús. Þegar við hinsvegar vorum komin hingað út í dótið okkar þá voru nú svo sem allir voðalega ánægðir að vera komnir aftur heim.

Hérna í Florida er ennþá alltof heitt og rakt. í gær t.d var 33 stiga hiti og loftið þykkt. Mér finnst hitinn samt alls ekki eins slæmur og mér fannst hann vera í fyrra.  Það gerði sennilega gæfumuninn að fara heim til Íslands aðeins. Ég hef verið að reyna að fara út að hlaupa en það er svo fáránlega óþægilegt að ég hef ekki verið sérlega dugleg. Hef oft hugsað það þegar ég er að hlaupa að svona sé líkega að hlaupa í gufubaði nema að þar er  ekki sól sem ætlar alveg að éta mann þannig að þetta er meira að segja verra.
Stelpurnar hafa mikið að gera í skólanum og standa sig rosalega vel báðar tvær.  Það er gríðarlega mikil heimavinna hjá þeim báðum og Birna t.d eyðir öllum stundum hérna heima í lærdóm en hún kemur yfirleitt ekki heim úr skólanum fyrr en kl 6. Ég er ennþá að reyna að venjast heimavinnuálaginu sem er á Hönnu Siggu en hún kemur oftast heim úr skolanum kl 4 (er þó stundum lengur) og svo þarf hún að læra 1 og hálfan klukkutíma á hverjum degi ef ég tel með lesturinn líka!!! Full mikið að mínu mati og stundum pínu erfitt að láta allt ganga upp.  

En jájá, allt gengur bara vel hjá okkur hérna í Flórida og núna vonar maður bara að haustið sé á næsta leyti.

Fyrsti skóladagurinn hennar Hönnu Siggu
Birna komin með æfingaleyfi
Iðunn stórhættuleg hlaupandi um allt og vill helst aldrei láta halda í hendina sína
Fór í kayakferð á lóninu 
Ótrúlega sportí
TGI Friday's
Hanna Sigga úti að labba með litlu systir í Viðjugerðinu í sumar 
Fallega prinsessan mín
Daði henti Birnu fullklæddri út í sundlaug og Birna gerir mótárás
Mamman hinsvegar bara tekur myndir af öllu

Flottar systur á ströndinni

ótrúlegt hvað hægt er að dunda sér á ströndinni
Iðunn krútta að verða alltof stór
Mömmustelpan min 
Sætust af öllum 

Ein mynd af nýja húsinu okkar á Íslandi 

Sunday, March 17, 2013

Fiskar og funnel kaka


Vorið á næsta leiti hérna í Vero Beach og loksins búið að breyta klukkunni. Núna er sem sagt bara 4 klst munur á okkur og Íslandi í staðinn fyrir 5. Ég reyndar þoli ekki daylight savings, það fer allt úr skorðum hjá stelpunum, ég tala nú ekki um þegar við missum klukkutíma. Hinsvegar finnst mér svo miklu betra að vera 4 klst á eftir í stað 5 að allt brasið er þess virði. 

Fyrir viku síðan fórum við á hátíð sem er haldin árlega hérna í Vero Beach og kallast Firefigters fair. Þetta var svona alvöru fair með allskonar tívólí tækjum, gripa sýningum, Demolition derby og fullt af rednecks. Við reyndar nenntum ekki að horfa á derby-ið en sáum bílana sem þeir notuðu þar og dí hvað þeir voru klesstir, hefði eflaust verið upplifun að horfa á. Við sáum líka gersamlega ofvaxnar kusur og svínið Honey boo boo :) Við fengum valkvíða á háu stigi þegar við vorum að reyna að velja okkur e-ð að borða úr öllum matsölubásunum. Þvílíkt magn og fjölbreytta óhollustu hef eg bara sjaldan séð. Við enduðum á því að kaupa okkur djúpsteikt Oreo kex og funnel cake sem við borðuðum í sameiningu. Fyrir þá sem ekki vita þá er funnel kaka deig sem er sprautað í djúpsteikningarpott og svo borðað með sykri eða jafnvel kremi. Oreo kökurnar voru eiginlega bara frekar vondar þó ótrúlegt meigi virðast en funnel kakan var mun betri. Nokkuð viss þó um að ég hafi aldrei borðað neitt jafn óhollt :/
Birna fór svo aftur á hátíðina í fyrradag með vinum sínum og kom heim með gullfisk sem hún hafði unnið í einhverri þrautinni. Hanna Sigga varð auðvitað agalega fúl þegar hún sá að Birna átti sinn eigin fisk en ekki hún þannig að á endanum gaf ég mig og fór út í gæludýrabúð til að fá annan fisk fyrir Hönnu Siggu. Gullfiskurinn hennar Birnu er fluttur inn í fínu salatskálina mína og betta fiskurinn hennar Hönnu Siggu fékk sína eigin skál því þeir drepa víst hvorn annan ef þeir eru saman. Get ekki sagt að ég sé neitt voðalega ánægð með að vera komin með tvær fiskaskálar inn í stofuna mín svona alveg óvart :( 

Birna er nýkomin úr skólaferðalagi sem hún fór í með bekknum sínum. Þau fóru í 5 daga river rafting ferðalag upp til Georgíu þar sem þau gistu í sumarbúðakampus inni í miðjum skógi. Þetta var víst svakalega skemmtilegt en ég viðurkenni alveg að mér fannst mjög skrítið og já bara erfitt að vita af henni einhversstaðar lengst í burtu í ókunnu fylki inni í miðjum skógi. Allavegna voða gott að vera búin að fá hana heim aftur. 

Núna er svo bara vika í spring break hjá Hönnu Siggu en þá erum við jafnvel að spá í að fara niður til Miami eða Key West svona rétt til að sjá e-ð nýtt. Eftir páskana styttist svo í það að besta systir í heimi komi í heimsókn til okkar með sína fjölskyldu þannig að það er ekkert nema skemmtilegt framundan hjá okkur :)

Funnel kaka í öllu sínu veldi og kaloríum :)
Aviation dagurinn er stór í Vero beach enda er þetta er mikill flug bær.
(T.d var það einmitt hérna sem Muhammed Atta og félagar lærðu að fljúga áður en þeir flugu á tvíburaturnana)
Birna og Dirk vinur hennar fyrir framan flugvélina sem fjölskyldan hans á.
Verið að horfa á 3-D Wreck it Ralph. pínu lúðar :)
Sara, fiskurinn hennar Hönnu Siggu (þessi blái ekki guli :D ) 
Jack fiskurinn hennar Birnu og flotta Sponge Bob húsið hans
Fallegasta fólkið á ströndinni
Rúsinan mín
Alltaf á ströndinni

Saturday, February 16, 2013

Allir hressir


Allt fínt að frétta frá Florida. Lífið gengur bara sinn vana gang og við með. 
Iðunn er farin að vera hjá barnapíu 2 - 3 sinnum í viku svona rétt til þess að gefa mér smá fri. Agalega vinaleg kona sem heitir Vicki kemur hingað til okkar og hefur ofan af fyrir lillunni í 2-3 klukkutíma á meðan ég geri e-ð skemmtilegt. Mér finnst þetta alveg frábært því ég get gert nákvæmlega það sem ég vil án þess að hafa barn/börn með mér. Iðunn er hinsvegar ekki jafn ánægð með þetta og grenjar eins og ljón í hvert skipti sem aumingja Vicki kemur.  Barnið er orðið hin mesta mannafæla enda hittir hún varla nokkra mannesku fyrir utan okkur heimilisfólkið.
Meðal þess sem ég hef verið að gera í frítímanum mínum er að fara í crossfit. Ójá ég skráði mig í crossfit gym hérna og verð orðin rosaleg einhverntíma með vorinu :) Mér leist reyndar ekkert á blikuna þegar ég átti að fara að klifra einhvern kaðal langt upp í loft en mér til léttis þá var ég ekki ein um það að hafa ekki klifrað kaðal frá því ég var 10 ára. 

Iðunn er farin að skríða afturábak og borða graut og mauk eins og stóru krakkarnir. Hún er nú ekkert alltof hrifin af grautnum en lætur sig þó hafa það ef hún er nógu svöng. 
Hanna Sigga er hin duglegasta og farin að lesa enskuna alveg fáránlega vel. Hún stundar tennis í einum af tennisklúbbunum hérna í Vero en þar sem að þetta er svoddan ríkisbubbastaður þá eru þeir fjölmargir. Henni finnst alveg gríðarlega gaman í tennis og er orðin furðu dugleg. 

Birna Luna eyddi síðustu helgi í Connecticut með vinkonu sinni en sú býr bæði hérna í Vero og í uppfrá í Ct. Vinkonan býr í bæ sem heitir Greenwich og er víst einn ríkasti bær Bandaríkjanna en þar búa nær eingöngu stórjaxlar af Walstreet og frægt fólk. Birna var svo heppin að lenda einmitt i óveðrinu sem var á austurströndinni um síðustu helgi og upplifa smá "Íslands veður" og ófærð.  Henni fannst það alls ekki leiðinlegt. Hún skemmti sér konunglega alla ferðina en einum deginum eyddu þær t.d rúntandi um Manhattan með einkabílstjóra pabba vinkonunnar sem er einimtt einn af stórjöxlunum á walstreet. Ósköp beisik bara :)

Heyrðu já, ég er svo loksins komin með Florida drivers license. Uhummm, kannski búið að taka full langan tíma en ég bara nennti ekki að lesa fjárans bókina og það var svo auðvelt að draga þetta. Ég var samt orðin frekar stressuð að keyra hérna þannig að fyrst verk mitt þegar ég fékk barnapíuna var að læra undir prófið og koma því af. Þurfti að taka bæði skriflegt og verklegt próf en að sjálfsögðu rúllaði ég því upp jeiiiiiii
Ekkert sérstaklega hrifin af grautnum
Öll fjölskyldan tók þátt í fyrsta matartíma Iðunnar
hihihi ein skeið af fáum sem rataði uppí dúlluna
Valentínusargjafirnar sem við Daði gáfum hvoru öðru :)

Svo mikið sætust þessi prinsessa

Langþráða ökuskírteinið.
Jafnvel þó svo myndin sé gífulega ljót og minni helst á mugshot :)

Monday, January 21, 2013

Löngu komið nýtt ár

Æ já orðið frekar langt síðan ég hef skrifað. Hefur svo sem nóg verið að gerast hjá manni en einhvernveginn tók ég ómeðvituð ákvörðun um að taka jólafrí frá blogginu og svo bara teygðist óþarflega á fríinu.
Eins og margir vita þá fórum við til Bahamas um jólin og höfðum það einstaklega gott þar í nokkra daga. Við vorum á Atlantis resortinu sem er gríðarlega vinsæll ferðamannastaður og fólk virðist koma þangað allstaðar að. Það voru að sjálfsögðu margir Bandaríkjamenn, enda mjög stutt að fara, en líka ótrúlega mikið af asíu- og evrópubúum. Mér fannst alveg einstaklega sniðugt og líka pínu fáránlegt að sjá allar múslimsku konurnar í "sundbolunum" sínum, hinum svokölluðu búrkíní. Ég vissi að þetta væri til en vissi ekki að þetta væri yfirhöfuð notað. En jú, það var alveg helling af konum í svona heilgöllum í 30 stiga hitanum í Bahamas og maður gat nú bara ekki annað en velt því fyrir sér hvort þetta væri þægilegt. Það er samt að sjálfsögðu skiljanlegt að konur skuli nota þetta þar sem þær gætu annars ekki neitt farið í sund þannig að maður verður bara að passa sig að vera ekki leiðinlegi gaurinn og dæma :)

Atlantis er eiginlega flottara en ég hélt og það kom mer skemmtilega á óvart allt sem hægt var að gera þar. Við hefðum þurft að vera í svona mánuð til að geta gert allt það sem við vildum gera. 
Við vorum hins vegar bara í nokkra daga, komum heim milli jóla og nýárs og þá biðu okkar allir jólapakkarnir sem við höfðum ekki nennt að taka með okkur. Við héldum jól 2.0 kvöldð sem við komum heim og það var voða gaman þó svo það hafi að sjálfsögðu ekki jafnast á við jólin heima á Hólabrautinni.

Ég hafði ímyndað mér að það gæti verið skemmtilegt að vera hérna í Vero Beach yfir áramótin því ég gekk auðvitað út frá því að það yrðu einhverskonar uppákomur til þess að fagna og halda uppá áramótin. Ég hef áður verið í Bandaríkjunum um jólin en aldrei yfir áramót þannig að ég vissi svo sem ekkert hverju ég átti að búast við. Mér til mikillar mæðu þá var akkúrat ekkert að gerast á gamlárskvöld og við fundum ekki neinar uppákomur aðrar en partý fyrir barnlausa sem eru auðvitað ekki við. Hérna virðist ekki vera nein hefð fyrir hátíðarhöldum á gamlársdag og dagurinn virtist bara vera eins og hver annar dagur :( Við höfðum keypt nokkrra lásí flugelda í Walmart (þeir voru s.s til þó svo enginn virtist vera að sprengja neitt) þannig að við kveiktum í þeim, horfðum á skaupið og fengum okkur snarl en að öðru leiti var lítið gert. 
Ég sé það nú að íslendingar eiga ekki bara frábæra menningu tengda jólunum heldur líka áramótunum og ég ætla sko alveg pottþétt að vera heima á Íslandi um næstu jól og áramót sama hvar ég verð búsett í heiminum.


Sætu stelpurnar mínar nýkomnar úr fluginu og beint í pakkaflóðið
Hanna Sigga búin að bíða alltof lengi eftir pökkunum
Birna Luna með jólagjöfina frá mér og Daða
Átamótin og Hanna Sigga tapar nú ekki gleðinni þrátt fyrir fáar fínar sprengjur
Iðunn er sko líka alltaf kát
Birna kveikir í walmart flugeldunum
Prinsessan mín