Allt fínt að frétta frá Florida. Lífið gengur bara sinn vana gang og við með.
Iðunn er farin að vera hjá barnapíu 2 - 3 sinnum í viku svona rétt til þess að gefa mér smá fri. Agalega vinaleg kona sem heitir Vicki kemur hingað til okkar og hefur ofan af fyrir lillunni í 2-3 klukkutíma á meðan ég geri e-ð skemmtilegt. Mér finnst þetta alveg frábært því ég get gert nákvæmlega það sem ég vil án þess að hafa barn/börn með mér. Iðunn er hinsvegar ekki jafn ánægð með þetta og grenjar eins og ljón í hvert skipti sem aumingja Vicki kemur. Barnið er orðið hin mesta mannafæla enda hittir hún varla nokkra mannesku fyrir utan okkur heimilisfólkið.
Meðal þess sem ég hef verið að gera í frítímanum mínum er að fara í crossfit. Ójá ég skráði mig í crossfit gym hérna og verð orðin rosaleg einhverntíma með vorinu :) Mér leist reyndar ekkert á blikuna þegar ég átti að fara að klifra einhvern kaðal langt upp í loft en mér til léttis þá var ég ekki ein um það að hafa ekki klifrað kaðal frá því ég var 10 ára.
Iðunn er farin að skríða afturábak og borða graut og mauk eins og stóru krakkarnir. Hún er nú ekkert alltof hrifin af grautnum en lætur sig þó hafa það ef hún er nógu svöng.
Hanna Sigga er hin duglegasta og farin að lesa enskuna alveg fáránlega vel. Hún stundar tennis í einum af tennisklúbbunum hérna í Vero en þar sem að þetta er svoddan ríkisbubbastaður þá eru þeir fjölmargir. Henni finnst alveg gríðarlega gaman í tennis og er orðin furðu dugleg.
Birna Luna eyddi síðustu helgi í Connecticut með vinkonu sinni en sú býr bæði hérna í Vero og í uppfrá í Ct. Vinkonan býr í bæ sem heitir Greenwich og er víst einn ríkasti bær Bandaríkjanna en þar búa nær eingöngu stórjaxlar af Walstreet og frægt fólk. Birna var svo heppin að lenda einmitt i óveðrinu sem var á austurströndinni um síðustu helgi og upplifa smá "Íslands veður" og ófærð. Henni fannst það alls ekki leiðinlegt. Hún skemmti sér konunglega alla ferðina en einum deginum eyddu þær t.d rúntandi um Manhattan með einkabílstjóra pabba vinkonunnar sem er einimtt einn af stórjöxlunum á walstreet. Ósköp beisik bara :)
Heyrðu já, ég er svo loksins komin með Florida drivers license. Uhummm, kannski búið að taka full langan tíma en ég bara nennti ekki að lesa fjárans bókina og það var svo auðvelt að draga þetta. Ég var samt orðin frekar stressuð að keyra hérna þannig að fyrst verk mitt þegar ég fékk barnapíuna var að læra undir prófið og koma því af. Þurfti að taka bæði skriflegt og verklegt próf en að sjálfsögðu rúllaði ég því upp jeiiiiiii
| Ekkert sérstaklega hrifin af grautnum |
| Öll fjölskyldan tók þátt í fyrsta matartíma Iðunnar |
| hihihi ein skeið af fáum sem rataði uppí dúlluna |
| Valentínusargjafirnar sem við Daði gáfum hvoru öðru :) |
| Svo mikið sætust þessi prinsessa |
| Langþráða ökuskírteinið. Jafnvel þó svo myndin sé gífulega ljót og minni helst á mugshot :) |
Gaman að lesa um ævintýri ykkar. Bestu kveðjur frá Noregi.
ReplyDeleteSakna þín Dísa mín.Yndislega fallegar stelpurnar þínar og gott ef Iðunn er ekki bara lík henni Kollu frænku sinni ;)
ReplyDelete