Monday, January 21, 2013

Löngu komið nýtt ár

Æ já orðið frekar langt síðan ég hef skrifað. Hefur svo sem nóg verið að gerast hjá manni en einhvernveginn tók ég ómeðvituð ákvörðun um að taka jólafrí frá blogginu og svo bara teygðist óþarflega á fríinu.
Eins og margir vita þá fórum við til Bahamas um jólin og höfðum það einstaklega gott þar í nokkra daga. Við vorum á Atlantis resortinu sem er gríðarlega vinsæll ferðamannastaður og fólk virðist koma þangað allstaðar að. Það voru að sjálfsögðu margir Bandaríkjamenn, enda mjög stutt að fara, en líka ótrúlega mikið af asíu- og evrópubúum. Mér fannst alveg einstaklega sniðugt og líka pínu fáránlegt að sjá allar múslimsku konurnar í "sundbolunum" sínum, hinum svokölluðu búrkíní. Ég vissi að þetta væri til en vissi ekki að þetta væri yfirhöfuð notað. En jú, það var alveg helling af konum í svona heilgöllum í 30 stiga hitanum í Bahamas og maður gat nú bara ekki annað en velt því fyrir sér hvort þetta væri þægilegt. Það er samt að sjálfsögðu skiljanlegt að konur skuli nota þetta þar sem þær gætu annars ekki neitt farið í sund þannig að maður verður bara að passa sig að vera ekki leiðinlegi gaurinn og dæma :)

Atlantis er eiginlega flottara en ég hélt og það kom mer skemmtilega á óvart allt sem hægt var að gera þar. Við hefðum þurft að vera í svona mánuð til að geta gert allt það sem við vildum gera. 
Við vorum hins vegar bara í nokkra daga, komum heim milli jóla og nýárs og þá biðu okkar allir jólapakkarnir sem við höfðum ekki nennt að taka með okkur. Við héldum jól 2.0 kvöldð sem við komum heim og það var voða gaman þó svo það hafi að sjálfsögðu ekki jafnast á við jólin heima á Hólabrautinni.

Ég hafði ímyndað mér að það gæti verið skemmtilegt að vera hérna í Vero Beach yfir áramótin því ég gekk auðvitað út frá því að það yrðu einhverskonar uppákomur til þess að fagna og halda uppá áramótin. Ég hef áður verið í Bandaríkjunum um jólin en aldrei yfir áramót þannig að ég vissi svo sem ekkert hverju ég átti að búast við. Mér til mikillar mæðu þá var akkúrat ekkert að gerast á gamlárskvöld og við fundum ekki neinar uppákomur aðrar en partý fyrir barnlausa sem eru auðvitað ekki við. Hérna virðist ekki vera nein hefð fyrir hátíðarhöldum á gamlársdag og dagurinn virtist bara vera eins og hver annar dagur :( Við höfðum keypt nokkrra lásí flugelda í Walmart (þeir voru s.s til þó svo enginn virtist vera að sprengja neitt) þannig að við kveiktum í þeim, horfðum á skaupið og fengum okkur snarl en að öðru leiti var lítið gert. 
Ég sé það nú að íslendingar eiga ekki bara frábæra menningu tengda jólunum heldur líka áramótunum og ég ætla sko alveg pottþétt að vera heima á Íslandi um næstu jól og áramót sama hvar ég verð búsett í heiminum.


Sætu stelpurnar mínar nýkomnar úr fluginu og beint í pakkaflóðið
Hanna Sigga búin að bíða alltof lengi eftir pökkunum
Birna Luna með jólagjöfina frá mér og Daða
Átamótin og Hanna Sigga tapar nú ekki gleðinni þrátt fyrir fáar fínar sprengjur
Iðunn er sko líka alltaf kát
Birna kveikir í walmart flugeldunum
Prinsessan mín

No comments:

Post a Comment