Sunday, March 17, 2013

Fiskar og funnel kaka


Vorið á næsta leiti hérna í Vero Beach og loksins búið að breyta klukkunni. Núna er sem sagt bara 4 klst munur á okkur og Íslandi í staðinn fyrir 5. Ég reyndar þoli ekki daylight savings, það fer allt úr skorðum hjá stelpunum, ég tala nú ekki um þegar við missum klukkutíma. Hinsvegar finnst mér svo miklu betra að vera 4 klst á eftir í stað 5 að allt brasið er þess virði. 

Fyrir viku síðan fórum við á hátíð sem er haldin árlega hérna í Vero Beach og kallast Firefigters fair. Þetta var svona alvöru fair með allskonar tívólí tækjum, gripa sýningum, Demolition derby og fullt af rednecks. Við reyndar nenntum ekki að horfa á derby-ið en sáum bílana sem þeir notuðu þar og dí hvað þeir voru klesstir, hefði eflaust verið upplifun að horfa á. Við sáum líka gersamlega ofvaxnar kusur og svínið Honey boo boo :) Við fengum valkvíða á háu stigi þegar við vorum að reyna að velja okkur e-ð að borða úr öllum matsölubásunum. Þvílíkt magn og fjölbreytta óhollustu hef eg bara sjaldan séð. Við enduðum á því að kaupa okkur djúpsteikt Oreo kex og funnel cake sem við borðuðum í sameiningu. Fyrir þá sem ekki vita þá er funnel kaka deig sem er sprautað í djúpsteikningarpott og svo borðað með sykri eða jafnvel kremi. Oreo kökurnar voru eiginlega bara frekar vondar þó ótrúlegt meigi virðast en funnel kakan var mun betri. Nokkuð viss þó um að ég hafi aldrei borðað neitt jafn óhollt :/
Birna fór svo aftur á hátíðina í fyrradag með vinum sínum og kom heim með gullfisk sem hún hafði unnið í einhverri þrautinni. Hanna Sigga varð auðvitað agalega fúl þegar hún sá að Birna átti sinn eigin fisk en ekki hún þannig að á endanum gaf ég mig og fór út í gæludýrabúð til að fá annan fisk fyrir Hönnu Siggu. Gullfiskurinn hennar Birnu er fluttur inn í fínu salatskálina mína og betta fiskurinn hennar Hönnu Siggu fékk sína eigin skál því þeir drepa víst hvorn annan ef þeir eru saman. Get ekki sagt að ég sé neitt voðalega ánægð með að vera komin með tvær fiskaskálar inn í stofuna mín svona alveg óvart :( 

Birna er nýkomin úr skólaferðalagi sem hún fór í með bekknum sínum. Þau fóru í 5 daga river rafting ferðalag upp til Georgíu þar sem þau gistu í sumarbúðakampus inni í miðjum skógi. Þetta var víst svakalega skemmtilegt en ég viðurkenni alveg að mér fannst mjög skrítið og já bara erfitt að vita af henni einhversstaðar lengst í burtu í ókunnu fylki inni í miðjum skógi. Allavegna voða gott að vera búin að fá hana heim aftur. 

Núna er svo bara vika í spring break hjá Hönnu Siggu en þá erum við jafnvel að spá í að fara niður til Miami eða Key West svona rétt til að sjá e-ð nýtt. Eftir páskana styttist svo í það að besta systir í heimi komi í heimsókn til okkar með sína fjölskyldu þannig að það er ekkert nema skemmtilegt framundan hjá okkur :)

Funnel kaka í öllu sínu veldi og kaloríum :)
Aviation dagurinn er stór í Vero beach enda er þetta er mikill flug bær.
(T.d var það einmitt hérna sem Muhammed Atta og félagar lærðu að fljúga áður en þeir flugu á tvíburaturnana)
Birna og Dirk vinur hennar fyrir framan flugvélina sem fjölskyldan hans á.
Verið að horfa á 3-D Wreck it Ralph. pínu lúðar :)
Sara, fiskurinn hennar Hönnu Siggu (þessi blái ekki guli :D ) 
Jack fiskurinn hennar Birnu og flotta Sponge Bob húsið hans
Fallegasta fólkið á ströndinni
Rúsinan mín
Alltaf á ströndinni

No comments:

Post a Comment