Tuesday, September 24, 2013

Fréttir frá Flórida


Kannski ég skrifi örlítið um það sem í gangi er hérna hjá okkur og hefur verið að undanförnu.

Við fjölskyldan eyddum stórum hluta sumarsins heima á Íslandi í nýja fína húsinu okkar sem við keyptum í vor. Hmm já kannski frekar skrítið að kaupa sér hús (eftir að hafa leigt í Reykjavík í 10 ár) einmitt þegar maður er búsettur allt annarsstaðar í heiminum.  Við vorum bara svo lengi búin að vera að melta þessi húsakaup og svo þegar við rákumst á þetta fína risastóra hús í Viðjugerðinu í Reykjavík þá ákáðum við að ef á annað borð við ætluðum að kaupa okkur hús þá væri ekki eftir neinu að biða.

  
VIð höfðum það voðalega næs heima á Íslandi í sumar, bæði í nýja húsinu í Reykjavík og á mörgum ferðalögum okkar um landið. Við vorum full mikið á ferðalegi kannski og fórum t.d hringinn tvisvar á þessum tíma sem við voum heima.  Húsið í Reykjavík var auðvitað tómt þannig að það var svolítið erfitt að vera þar og ég held að við höfum ekki verið í Reykjavík nema kannski samanlagt í tvær vikur. 

Um miðjan ágúst pökkuðum við svo því litla dóti sem var á Íslandi og fundum þessa fínu leigjendur sem núna búa í húsinu. Sjálf flugum við fjölskyldan aftur hingað út til Florida þar sem stelpurnar byrjuðu í skólanum tveimur dögum seinna. Ég viðurkenni alveg að mig langaði ekkert að koma aftur hingað út heldur vildi bara flytja inn í fína húsið MITT og byrja á restinni að æfinni loksins í mínu eigin hús. Þegar við hinsvegar vorum komin hingað út í dótið okkar þá voru nú svo sem allir voðalega ánægðir að vera komnir aftur heim.

Hérna í Florida er ennþá alltof heitt og rakt. í gær t.d var 33 stiga hiti og loftið þykkt. Mér finnst hitinn samt alls ekki eins slæmur og mér fannst hann vera í fyrra.  Það gerði sennilega gæfumuninn að fara heim til Íslands aðeins. Ég hef verið að reyna að fara út að hlaupa en það er svo fáránlega óþægilegt að ég hef ekki verið sérlega dugleg. Hef oft hugsað það þegar ég er að hlaupa að svona sé líkega að hlaupa í gufubaði nema að þar er  ekki sól sem ætlar alveg að éta mann þannig að þetta er meira að segja verra.
Stelpurnar hafa mikið að gera í skólanum og standa sig rosalega vel báðar tvær.  Það er gríðarlega mikil heimavinna hjá þeim báðum og Birna t.d eyðir öllum stundum hérna heima í lærdóm en hún kemur yfirleitt ekki heim úr skólanum fyrr en kl 6. Ég er ennþá að reyna að venjast heimavinnuálaginu sem er á Hönnu Siggu en hún kemur oftast heim úr skolanum kl 4 (er þó stundum lengur) og svo þarf hún að læra 1 og hálfan klukkutíma á hverjum degi ef ég tel með lesturinn líka!!! Full mikið að mínu mati og stundum pínu erfitt að láta allt ganga upp.  

En jájá, allt gengur bara vel hjá okkur hérna í Flórida og núna vonar maður bara að haustið sé á næsta leyti.

Fyrsti skóladagurinn hennar Hönnu Siggu
Birna komin með æfingaleyfi
Iðunn stórhættuleg hlaupandi um allt og vill helst aldrei láta halda í hendina sína
Fór í kayakferð á lóninu 
Ótrúlega sportí
TGI Friday's
Hanna Sigga úti að labba með litlu systir í Viðjugerðinu í sumar 
Fallega prinsessan mín
Daði henti Birnu fullklæddri út í sundlaug og Birna gerir mótárás
Mamman hinsvegar bara tekur myndir af öllu

Flottar systur á ströndinni

ótrúlegt hvað hægt er að dunda sér á ströndinni
Iðunn krútta að verða alltof stór
Mömmustelpan min 
Sætust af öllum 

Ein mynd af nýja húsinu okkar á Íslandi 

No comments:

Post a Comment