Héðan er allt fínt að frétta eins og venjulega. Foreldrar Daða eru í heimsókn og það er auðvitað skemmtileg tilbreyting og gaman að hafa félagskapinn. Við erum búin að hafa nóg að gera þessa viku sem þau hafa verið hér. Fórum í dýragarðinn og í kayakferð og fullt af búðum og svo auðvitað margsinnis á ströndina. Veðrið er búið að vera eins og best er á kosið og mikið búið að njóta sólarinnar.
Við vorum lengi búin að vera með það á prjónunum að kaupa okkur kayak eða einhversskonar bát. Það eru svo frábærar aðstæður til slíkrar iðkunar hérna í Vero Beach (og reyndar bara öllu Flórida) að það lá alltaf beint við að maður tæki þátt í einhverju vatnasporti. Eftir að við vorum búin að skoða verð og tegundir rákumst við á ódýra og þægilega uppblásna kayaka sem mér fannst upplagt að byrja á.
Við erum búin að fara nokkurm sinnum og þeir reynast alveg ótrúlega vel miðað við allt. Við keyptum tvo tveggja manna þannig að við getum öll farið nema Iðunn auðvitað.
Fyrsta skipti sem við fórum út á bátunum fengum við reyndar smá sjokk þegar risa krókódíll maraði í hálfu kafi við hliðina á bátnum. Ekkert sérstakt að vera í gúmmíbát með börnin sin og rekast á krókódíl :(
Æ já það er svolítið öðruvísi raunveruleiki sem maður þarf að venjast hérna í FL þegar kemur að dýralífi. Einn morguninn þegar Birna Luna var að græja sig fyrir skólann opnar hún klósettið og risa hlunka froskur stekkur upp úr því. Hún kallaði auðvitað á okkur Daða, sem ennþá vorum sofandi, og við þyrluðumst upp úr rúminu. Eltingaleikurinn við klósettfroskinn tók dágóða stund í morgunsárið en hann hoppaði og klístraðist um alla veggi áður en ég náði að veiða hann í kökudós.
í Síðustu viku var ég líka að leggja bílnum inn í bílskúr eins og ég geri svo oft þegar ég tek eftir einhverju sem lafir aftanúr afturdekkinu. Þegar ég skoða það nánar sé ég að það er snákur sem ég hef keyrt yfir og smurt svona skemmtilega eftir dekkinu á bílnum. Oj bara,,,,, ég bakkaði bílnum aftur út og reyndi að losna við þettta en endaði á því að þurfa að plokka restina af dekkinu.
Núna er það svo bara næst á dagskrá að skreyta fyrir Halloween og fara að undirbúa afmælið hennar Hönnu Siggu.
 |
| Ég keypti mér þennan fína vagn sem hægt er að festa aftaní hjólið |
 |
| Iðunn hefur það voða gott í fína vagninum |
 |
| Daði og Birna fóru á ródeó um daginn og það var auðvitað spes upplifun (Birnu fannst hún vera komin heim) |
 |
| Pumpkin og prinsessur fyrir utan Freshmarket |
 |
| Dúllan mín alltaf svo fín |
 |
| Allir að stilla sér upp með graskerjunum |
 |
| Birna að knúsa Iðunnina sína |
 |
| Sætar systur |
 |
| Verið að græja í kayakana |
 |
| Flottir |
 |
| Við Hanna Sigga líka flottar |
 |
| Afinn er í miklu uppáhaldi hjá prinsessunni |
 |
| Í dýragarðinum |
 |
| Hanna Sigga fékk að greiða geit |
No comments:
Post a Comment