Héðan af Almiranta Ln er allt fínt að frétta. Birna Luna er búin að vera núna í rúma viku í nýja skólanum og líkar rosalega vel. Hún er farin að ganga í þessum líka fína skólabúningi (hann er allavegna pínu öðruvísi (: ) og mætir með tablet-ferðatölvu í skólann á hverjum degi. Á morgun er svo skólaferðalag í Disney World þar sem krakkarnir fara í ratleik og hafa skemmtilegt allan daginn.
Í gær loksins keyptum við okkur bíl. Búin að vera á bílaleigubíl frá því við komum og bara ekki nennt að spá í þessu. Það var hisnvegar löngu orðið tímabært þannig að við eyddum stórum hluta undanfarinna daga í að velta fyrir okkur hvaða bíl við ættum að kaupa. Vorum aðallega að velja á milli toyota 4runner, Ford Explorer, Honda Pilot og svo kom volvo sterkur inn. Við enduðum á að kaupa okkur splunkunýjan Honda Pilot, hlaðinn aukabúnaði sem er auðvitað aðal málið :) (það finnst okkur Hönnu Siggu allavegna) Hann er voðalega fallegur og stór og passar vel fyrir svona plássfreka fjölskyldu sem við erum.
Um síðustu helgi fórum við fjölskyldan á hverfahátíð hérna í Vero Beach sem hét því skemmtilega nafni "Florida craft brew and wingfest". Þar gat fólk keypt sér armband inná svæðið og þannig drukkið eins og það vildi af uþb 80 tegundum af bjór. Það voru líka óteljandi matasölustandar þar sem seldur var allskonar matur á einstaklega hagstæðu verði. Daði fékk sér auðvitað bjór en við stelpurnar létum okkur nægja að ryðja í okkur allskonar annarskonar góðgæti. Hanna Sigga virðist vera flott efni í kana því hún hakkaði vængina í sig eins og enginn væri morgundagurin. Vængir ì hinum ymsu útfærslum eru grîdarlega vinsælir hérna ì suðrinu :)
Flotti nýji bíllinn
Hvenær ætlar Daði eiginlega að kaupa sér Tesla?
ReplyDeleteÞetta er glæsilegur eðalvagn!
ReplyDeleteSvaka kerra! Hanna Sigga hefur getað horft á sjónvarpið í honum á leið á ballettæfingu! Gott að Birnu Lunu líkar vel í skólanum - er alveg bannað að sýna myndir af henni í skólabúningnum? Kannski ekki vinsælt... Allt gott hér í rigningunni. Góðar kveðjur frá öllum.
ReplyDelete