Jæja, orðið svolítið langt síðan ég hef skrifað. Ýmislegt búið að gerast þó, eins og t.d þá átti ég afmæli þarsíðasta laugardag og er orðin alveg einu ári eldri :) Við áváðum að halda uppá daginn með því að fara á ströndina með vinafólki okkar og þar áttum við gríðarlega skemmtilegan dag. Við höfðum með okkur fullt af dóti svo enginn þyrfti að láta sér leiðast og það var mokað og lesið og surfað (á búggíbrettinu hennar Hönnu Siggu) og svo í lokin þá grilluðum við pylsur á línuna. Um kvöldið var svo enn ein hverfahátíðin hérna í Vero Beach og þangað létum við okkur auðvitað ekki vanta. Það var búið að loka einni aðalgötunni í bænum og setja upp svið og fullt af matsölustöndum. Tónlistin var reyndar arfaléleg en aðal atriðið var miðaldra kona hérna úr bænum sem söng (einstaklega illa) og spilaði á trompet þess á milli (líka illa). Við reyndum bara að leiða hjá okkur "Mambó Italianó" og "The Wind beneath my wings" með því að kaupa okkur allskonar góðgæti á sölubásunum og gekk það alveg mæta vel :) Á sunnudgainn keyrðum við svo til Palm Beach til að kíkja í voða fína verslunarmiðstöð og þar tókst okkur mæðgum að versla einhver ósköp. Sem sagt alveg hreint fínasta afmælisthelgi :)
Í síðustu viku varð Hanna Sigga veik og var því frá skóla mest alla vikuna. Við fórum svo með hana til læknis þar sem kom í ljóst að hún er með e-ð sem kallast atypical lungnabólga og þurfti hún því að fá pensilín og taka því rólega þar til þetta líður hjá. Maður sem sagt getur orðið veikur þó svo það sé alltaf sól og blíða.
Birna Luna fékk hlutverk í leikriti sem verið er að setja upp í skólanum hennar og hún er voðalega spennt að byrja að æfa. Leikritið heitir Starry Messenger og fjallar um æfi vísindamannsins Galileo Galilei. Hlutverkið hennar er víst bara nokkuð stórt og ég er strax farin að hlakka til að mæta á frumsýninguna í vor :)
Þessa vikuna er spring break bæði hjá Hönnu Siggu og Birnu og því eru þær í frií frá skólanum. Planið er að nýta fríið og fara til New York því við erum svo miklir aðdáendur New York borgar. Daði getur þá bara mætt í vinnuna sína á Wall street á meðan við stelpurnar njótum borgarinnar eins og fínar konur :)
No comments:
Post a Comment