Monday, January 23, 2012

Mánudagur númer 2 í Vero Beach

Núna erum við fjölskyldan búin að búa í Vero Beach í rúma viku. Húsið okkar er ennþá sorglega tómt og lífið er ennþá í hálfgerðri upplausn. Birna Luna er þó byrjuð í skólanum en í dag var dagur númer 3 hjá henni í Gifford Middle School. Þrátt fyrir að ég hafi gert mitt besta til að kaupa gleði hennar eftir fyrsta skóladaginn (fórum í mollið og versluðum fyrir alltof mikla peninga) þá hefur hún ekki verið neitt sérlega sátt með nýja skólann. Hún var þó örlítið ánægðari í dag þegar hún kom heim þannig að ég sé smá von um að allt eigi eftir að blessast.

Í dag var ætlunin að fara með Hönnu Siggu í skólann sinn og skrá hana. Það reyndist þó alls ekki vera eins einfalt og það hljómar því í skólanum sem Hanna Sigga fer í er þess krafist að nemendur fari í læknisskoðun áður en þeir byrja í skólaum. Við erum engu að síður með bólusetningaupplýsingar að heiman en neinei,,, engar undantekningar og við þurfum að fá tíma hjá lækni fyrir hana fyrst. Ok finna lækni. Við erum auðvitað ekki komin með heimilislækni ennþá þannig að það var farið í það að reyna að finna einn slíkan. Við hringdum á óteljandi staði þar sem ekki var tekið við nýjum sjúklingum eða þá enginn tími laus fyrr en eftir 2 vikur eða meira áður en við loksins fundum barnalækni sem getur tekið við henni og gert læknisskoðunina á miðvikudaginn. Ég er að vona að greyið litla geti svo byrjað í skólanum strax daginn eftir það því hún er orðin ansi spennt og óþolinmóð.

Það er að rifjast upp fyrir mér frá því við bjuggum í NH hversu rosalegt pappírsflóð er alltaf í kringum allt hérna í Bandaríkjunum. Ég er alveg með bunka af pappírum sem ég þarf að skila inn þegar ég fer með Hönnu Siggu í læknisskoðunina. Bara rúmlega klukkutíma vinna. Mér datt líka til hugar að troða Birnu Lunu í Lacross í skólanum en óaði alveg við 10 bls bunkanum sem ég þarf að fylla inn til þess að sækja um að komst í prufurnar. Alveg sama hvað það er þá er það alltaf amk 5 bls að fylla inní.

No comments:

Post a Comment