Jæja, Hanna Sigga fær að byrja í skólanum á morgun loksins. Hún fór í læknsiskoðunina í dag og fékk auðvitað topp einkunn :) Hún þurfti að fá tvær sprautur sem vantaði uppá til þess að hún væri gjaldgeng í skólana í Florída og svo þurfti hún að fá flensusprey í nefið! Þetta var auðvitað allt alveg hroðalegt fannst henni þó svo það hafi sennilega verið það allra fáránlegasta að þurfa að pissa í glas!! Ég vissi ekki hvert hún ætlaði þegar ég bað hana um að það :) En jújú þetta gekk allt saman upp og að lokum gátum við farið í Beachland Elementary skólann og skráð hana þar (og auðvitað fyllt inn ótal blaðsíður). Hún fékk skólabúning til þess að mæta í á morgun og var nú daman ekki mikið hrifin. Frekar óspennandi einlita buxur/pils og pólóbolur sem líka verður að vera einlita.
Ég get nú ekki sagt að ég sé pollróleg með að fara með hana og skilja hana eftir aleina í skólanum. Óvíst hvort maður sofi yfir höfðu e-ð í nótt :/
Hanna Sigga í "fína" búningnum
hún hressir aldeilis uppá þennan lummó búning! Gangi ykkur vel :)
ReplyDeleteEkki bleikur??
ReplyDeleteGott að daman hefur getað byrjað loks í skólanum - þrátt fyrir óspennandi búning. Þar er nú gott að leika og hitta krakka og svo verður hún svo fljót að læra tungumálið í skólanum. Gangi ykkur allt í haginn. Allir biðja að heilsa. Emma sendir sérstakar kveðjur til Hönnu Siggu.
ReplyDelete