Jæja Halloween búið og við skemmtum okkur konunglega. Ég elska halloween, alveg ótrúlega skemmtileg hátíð.
Við fórum í veislu til vinafólks okkar um síðustu helgi þar sem boðið var uppá allskonar ljúffengan og "scary" mat eins og deviled eggs, eyeball mozzarella og spooky cheese. Eitt það flottasta var þurr ís sem settur var ofan í krús með vatni í og þá flæddi agalega scary þoka um allt borðið. Hanna Sigga var sérlega hrifin af því. Í veislunni fengu allir sem vildu að skera grasker og Hanna Sigga nýtti sér auðvitað það tækifæri. Hún skar út þessa líka fallegu graskers stelpu sem mátti sko eki vera hið minsta scary því hún Hanna Sigga mín er ekkert sérlega hrifin af neinu þannig. Hennar grasker var örugglega hamingjusamasti Jack-O af öllum þessa Halloween hátíð :)
Á Halloween-daginn sjálfan mætti ég upp í skóla til þess að hjálpa til við halloween hátíð bekkjarins hennar Hönnu Siggu. Maður er auðvitað ekta soccer mamma og þannig gera þær :) Við vorum 5 mömmurnar sem héldum uppi skemmtun fyrir krakkana í 2 klukkutíma. Við vorum t.d með halloween-bingó, allskonar sniðugar tilraunir og kökuföndur, þar sem þau bjuggu til nornahatt úr köku, súkkulaði og kremi. Þetta var alveg svakalega gaman og krakkarnir voðalega ánægðir.
Um kvöldið fórum við Hanna Sigga svo i búningana okkar og fórum út að Trick-Or-Treat-a hérna í nágrenninu. Við búum í agalega fínu hverfi þar sem er mikið af eldra fólki sem var voðalega ánægt að sjá Hönnu Siggu sætu í kisubúningnum sínum. Hún var þvi enga stund að stútfylla dúnkinn hennar af nammi og við þurftum meira að segja að fara heim að tæma því hún vildi alls ekki hætta þó svo dósin væri orðin full. Það fyndna er samt að ég held að hún hafi borðað svona sirka 5 bita af öllu namminu og ég hef ekki hugmynd um það hvað ég á að gera við þetta allt. Kannski ég bara neyðist til þess að hjálpa henni með þetta :)
 |
| Daði tilbúinn í bjórinn |
 |
| Voða sætar, Birna augljoslega sérstaklega spennt yfir þessu |
 |
Iðunn var alls ekki neitt hrifin af búningnum sínum,
held hún hafi enst í honum í 15 mín |
 |
| Uþb 5 mín áður en hún fór að hárenja |
 |
| Hanna Sigga og hamingjusama graskerið |
 |
| Vð Hanna Sigga skárum líka pumkin heima |
 |
| Voðalega einbeitt |
 |
Sko hvað við vorum duglegar, smá kisuþema í gangi, Hanna Sigga fékk að velja hvaða myndir við skárum út :) |
 |
| Verið að fara út að trick-or-treata |
 |
| og svo er bara að borða :) |
Greinilega gaman hjá ykkur. Litla lambið er náttúrulega ótrúlega sætt :)
ReplyDeleteFlottir búningar og Grasker :)
ReplyDeletevá góðar heimtur! mmmm Hi-C!
ReplyDeleteVæri til í að prófa þetta einhverntíma, þið eruð alveg glæsileg í þessu :)