Alltaf nóg að gera hjá okkur hérna í Vero Beach. Í dag fór ég með Hönnu Siggu í skólaferðalag að sjá leikritið Öskubusku. Við fórum með skólarútum (það ætlaði reyndar alveg að ganga frá mér dauðri út af loftleysi og hita) ásamt uþb 200 öðrum börnum. Leikritið var voðalega skemmtilegt og hitti auðvitað beint í mark hjá Hönnu Siggu minni sem elskar prinsessur.
Í gær lentu Daði og Birna Luna í því að það var keyrt aftaná þau þegar Daði var að skutla Birnu í skólann. Þau sluppu alveg heil en bíllinn sem við vorum á (bílaleigubíll sem betur fer) skemmdist nokkuð. Þetta var voða aksjón og löggan kom og sjúkrabíll og meira að segja slökkviliðsbíll (það fannst Birnu fyndnast (: ). Þau voru greyin á vettvangi alveg heillengi að gefa skýrslu og tala við bráðaliða þannig að Birna komst ekki í skólann fyrr en seint og um síðir. Daði var sem betur fer í 100% rétti þannig að það var ekkert mál að skila inn bílaleigubílnum og fá annan ennþá betri í staðinn :)
Annars er það margt sem maður þarf að venjast við að búa á stað eins og Vero Beach. Ég t.d þurfti að veiða dauða kanínu uppúr sundlauginni minni um daginn (ojjjjjjjjjjjj) og smala eðlu undan sófanum í stofunni í gær en Hanna Sigga greyið á erfitt með að muna að loka netinu fyrir svalahurðirnar þegar hún gengur um :)
Hanna Sigga svöl :)
Þetta var nú fyndið sagði Axel Elí þegar við lásum um kanínuna og eðluna!! Annars er gaman að heyra frá ykkur og gott að enginn meiddist í bílslysinu. Vonandi heldur allt áfram að vera skemmtilegt og gaman hjá ykkur. Bestu kveðujur frá Emmu, Axel og okkur hinum!
ReplyDelete