Friday, February 10, 2012

Alltaf að læra e-ð nýtt

Í dag ætlar að koma hingað til mín meindýraeyðir til að spreyja fyrir maurum. Eitt af því allra mest óþolandi við það að búa hérna er að díla við allar pöddurnar sem eru hérna. Það sem fer mest í taugarnar á mér eru pínulitlir maurar sem heita held ég ghost ants en það eru reyndar óteljandi tegundir af þessu. Þeir eru allsstaðar og komast inn í allt og ef maður svo mikið sem hugsar um að skilja matvæli eftir liggjandi einhversstaðar þá eru þeir mættir. Ég fór í gær á playdate með Hönnu Siggu og var að tala við mömmuna um þessi óskemmtilegu kvikindi. Hún sagði mér að allir í Florida fá meindýraeyði til sín reglulega til að halda þessu niðri og þá á maður víst að geta meira að segja skilið matvæli eftir úti án þessu að maurarnir komi. Vá hvað það hljómar vel,,,, við höfðum strax samband og eins og ég segi þá koma þeir í dag! JIBBÍ :)

Annars gengur allt bara vel hjá okkur. Við fengum dótið okkar frá Íslandi núna á þriðjudaginn þannig að núna erum við að reyna að taka uppúr kössunum og ganga frá. Það besta við sendinguna var eiginlega að fá hjólin okkar og við mæðgurnar erum búnar að fara út að hjóla á hverjum degi síðan þau komu. Það er gaman að hjóla hérna því það eru hjólastígar víða og svo er auðvitað aldrei vindur og engar brekkur :)

Um helgina var planið að fara til Orlando í The Magic Kingdom en mér sýnist á veðurspánni að það eigi að rigna þannig að ætli maður nenni því nokkuð. Best að láta það bara ráðast.

Öll fjölskyldan slappar af við sundlaugina

Fín nýju patio húsgögnin okkar :)

Birna Luna veiddi eðlu

2 comments:

  1. Gott að heyra að allt gengur vel krúttið mitt, láttu nú Daðalinginn smella af einni mynd af þér svo ég sjái framan í þig :)
    Knús og kossar

    ReplyDelete
  2. Gott að heyra frá ykkur! Vonandi losnið þið við maurana... Gott að fá dótið sitt, ég get ímyndað mér að allir hafi verið glaðir! Bið að heilsa ykkur, hafið það sem allra best og heyri í ykkur við tækifæri - við erum reyndar í Reykjavík eins og er, förum heim á morgun. Kv. Eva og co.

    ReplyDelete