Núna er Thanksgiving rétt handan við hornið og helling að gerast í samfélaginu út af því. Black Friday auglýsingarnar eru alveg að gera útaf við mann og ég er löngu búin að lofa sjálfri mér því að voga mér ekki út í eina einustu búð á Black Friday. Ég gersamlega þoli ekki að útúrfullar verslanir og það sem þeim fylgir.
Á föstudaginn tók ég þátt í Thanksgiving skemmtun í skólanum hennar Hönnu Siggu en ég sá um að láta börnin föndra einstaklega spennandi skífu sem þau gátu notað til þess að tjá þakklæti sitt með. Þeim fannst þetta nú misspennandi krökkunum og vildu miklu frekar fara yfir á næstu stöðvar þar sem ma var verið að búa til kalkún úr Oreo kökum og kremi. Flestir kláruðu nú skífuna þó svo ég hafi þurft að draga ansi marga að landi og ég var eiginlega bara voðalega fegin (og kófsveitt) þegar þetta var búið.
Fyrir 2 vikum héldum við uppá afmælið hennar Hönnu SIggu. Við vorum bara grand á því á buðum öllum bekknum i bíó á myndina Wreck-it-Ralph. Við fengum afnot af voða fínu afmælisherbergi í bíóinu þar sem Hanna Sigga tók á móti gestunum og bauð öllum uppá svaka fína Bratz afmælisköku. Með herberginu fylgdi svo starfsmaður bíósins sem sá um að stjórna leikjum með börnunum og bera í þau popp og kók þar til myndin byrjaði. Ég verð að segja að þetta var eins þægilegt fyrir okkur Daða eins og það gat verið og Hanna Sigga var yfirsig sæl með daginn. Já og myndin líka alveg sérlega skemmtileg :)
Núna er high-season að byrja hérna í Vero Beach og allt að fyllast af hinum svokölluðu farfuglum (snowbirds eins og þau eru kölluð hérna í Flórida). Það er ríkt fólk úr norðurfylkjum Bandaríkjanna sem eyða vetrinum hérna í góða veðrinu í Flórida. Mikið af þessu fólki er komið vel á ellilífeyrisaldurinn en sér samt ekki ástæðu til þess að hætta að keyra fínu Bensana sína þannig að umferðin er að verða algert hell. Um daginn sat ég og fylgdist með því þegar gríðalega gömul hjón tóku nærri því 15 mínútur að koma sér út úr bílnum sínum (geðveikum Bens btw) og ganga eftir bílaplaninu og inn í nærliggjandi verslun. Þau og svo margir aðrir hérna bera það ekki með sér að geta svo mikið sem klætt sig sjálf hvað þá keyrt bifreið á fjölförunum götum. Ég er allavegna mjög fegin að Birna Luna er ekki komin með bílpróf ennþá.
Að endingu finnst mér ekki leiðinlegt að segja frá því að við fjölskyldan ætlum að eyða jólunum á Bahama eyjum. Við erum búin að bóka flug út og gistingu á svakalega fínu
resorti þar mér sýnist við geta gert allt milli himins og jarðar. Þó svo það verðir erfitt að fara ekkert heim til Íslands um jólin þá held ég að þetta eigi eftir að vera æðislegt og vel eftirminnilegt og ég hlakka ótrúlega mikið til.
 |
| Hanna Sigga sæta á afmælisdaginn sinn |
 |
| Prinsessan blæs á kertin á fínu kökunni |
 |
| Agalega sæt |
 |
| Fallega stelpan mín í fallegu fötunum sem amma prjónaði |
 |
| Hanna Sigga týnir sítrónur af trénu okkar í garðinum |
 |
| Hanna Sigga býr sér til Latabæjar smúðí og Iðunn fylgist vel með |
 |
| Iðunn yndislega með lubbann sinn |