Friday, October 26, 2012

Halloween, haust og heimþrá


       Þá erum við búin að fara heim til Íslands að ferma og skíra. Fríið allt var alveg frábært og það var gríðarlega erfitt að segja bless við alla og fara aftur hingað út. Ljósi punkturinn í þessu öllu er þó að núna er að koma vetur hérna í Vero Beach og veðrið að verða þolanlegt. Ég gæti e.t.v farið út að labba með Iðunni áður en langt um líður.
Fyndið hvað við erum öll ánægð með að hitinn fari lækkandi og veturinn sé að koma. Mér hefði aldrei dottið til hugar hversu mikið ógeð ég gæti haft á sólinni og góða veðrinu :)

       Fermingin/skírnin gekk bara vel eins og svo sem við var að búast. Birna var stórglæsileg í fína kjólnum sínum og hárgreiðslan hennar Ellýar toppaði alveg lookið. Eva systir sá um að skipuleggja veisluna og útbjó nærri allar veitingarnar (með smá hjálp frá mér, mömmu og Unni) og veislan gekk alveg einstaklega vel. Ég veit ekki hversu oft hún Eva hefur reddað málunum fyrir mig og ég á svo sannarlega bestu systir í heimi. 
Við vorum að mestu heima á Höfn en fórum líka yfir helgi út á Foss. Ég hitti fullt af frábæru fólki og sakna þeirra strax, skil stundum ekki af hverju maður býr bara ekki á Hornafirði.

       Núna erum við hinsvegar að heima á Almiranta Ln allar mæðgurnar að bíða af okkur fellibylinn Sandy. Skólarnir eru lokaðir í dag  út af veðrinu sem er þó alls ekki svo slæmt, Ísak var mun verri þegar hann gekk hérna yfir í haust. Birna Luna er ekkert hrædd við veðrið og er bara á leiðinni í mollið með vinkonu sinni. Hanna Sigga er voðalega leið yfir því að skólanum hafi verið aflýst í dag því í dag átti að vera Halloween hátíð í skólanum sem er búið að vera að skipuleggja í margar vikur. Við vonum bara að hátíðin verði haldin fljótlega svo Hanna Sigga fái að klæðast fína kisubúningnum sínum.

       Á næstunni er svo á dagskránni hjá okkur ýmislegt skemmtilegt. Daði og Birna Luna eru á leiðinni á tónleika með hljómsveitinni Rascal Flatts (mjög vinsæl country hljómsveit ef þú ert að velta því fyrir þér). Ýmiskonar halloween partý eru líka á dagskrá og svo er það auðvitað að halda uppá afmæli Hönnu Siggu um næstu helgi. Það er sem sagt nóg að gera hjá okkur og það ætti að hjálpa okkur í heimþránni sem kom með okkur frá Íslandi :'(



Þessi var tekin til að sýna bekknum hennar HönnuSiggu


þessi líka

Birna fór með mig og Evu á hestbak