Ætla að byrja á því að reyna að skrifa oftar!
Eins og flestir sem þetta lesa vita þá fæddist nýr fjölskyldumeðlimur í síðasta mánuði, hinn 17 júlí nánar tiltekið. Hún Iðunn Hrefna dafnar vel og allt gengur bara eins og best væri á kosið.
Litla prinsessan var 4050 gr og 56 cm og þótti vel stór á spítalanum í Melbourne þar sem hún fæddist. Núna mánuði seinna er hún orðin 5 kg og er farin að passa í föt sem ætluð eru 3 mánaða. Hún fæddist með svaaaakalega mikið hár og bandaríkjamönnunum finnst hún líta út fyrir að vera mun eldri en 1 mánaða. Ég segi þeim ítrekað að hún hefði ekki þótt neitt voðalega stór á Íslandi þar sem börn fæðast mjög stór :)
Ég er alveg að verða búin að jafna mig eftir fæðinguna svei mér þá fyrir utan hvað ég á eftir að ná af mér allnokkrum aukakílóum sem bættust á mig á þessum 9 mánuðum :/ Liggur svo sem ekkert á en dí hvað er leiðinlegt að búa í Flórida þar sem ekkert er hægt að nota nema ermalust og stutt og létt,,,, ekki hægt að klæða af sér þessi aukakíló neitt :)
En já taladi um Flórída, veðrið hérna ÓMG, get bara ekki sagt annað. Þessir sumarmánuðir eru búinir að vera brútal og ég segi það hér með að ég kem ekki til með að verja fleiri sumrum hérna sama hversu lengi ég bý hérna. Ekki bætir það heldur úr skák að vera ólétt eða með barn á brjósti því manni er víst ennþá meira heitt þegar þannig stendur á. Núna er einn mánuður eftir af óþægilegum hita en eftir september fer þetta víst að skána. Ég get ekki komið því í orð hvað ég hlakka mikið til!!
Sumarið hefur liðið alveg voðalega hratt og Hanna Sigga var að byrja í skólanum í gær. Ég er mjög ánægð með að hún fari aftur að hafa samskipti við krakka því hún hefur voðalega lítið hitt vini sína í allt sumar út af öllu sem gengið hefur á hérna á heimilinu. Þetta er samt svolítið erfitt því það er stokkað upp í bekkina á hverju ári þannig að bæði fær hún nýjan kennara og alveg nýjan bekk. Vonandi verður hún bara fljót að venjast aftur. Birna byrjar svo í næstu viku og það verður líka gott fyrir hana að komast aftur í skólann. Birna er að fara í 9.bekk en það þýðir að hún er að fara í high school. Það er voðalega spennandi og ýmsar breytingar sem því fylgja. Ein sú allra besta að Birnu mati er að hún þarf ekki lengur að vera í skólabúningnum sem hún þurfti að vera í í 8.bekk. Núna er bara dress code og þó svo hann sé mjög strangur (eingöngu skyrtur og kjólar með krögum, engin logo og bara einlitað svo e-ð sé nefnt) þá er hann hátíð miðað við búningana.
