Thursday, May 10, 2012

Maí í Florida


Við í Vero Beach erum að hafa það voðalega gott hérna í eilífu blíðunni. Alltaf nóg að gera hjá öllum og aldrei svo sem tækifæri til að láta sér leiðast. Birna Luna og bekkurinn hennar í skólanum sýndu um daginn leikritið Rómeo og Júlía og við Daði létum okkur auðvitað ekki vanta. Birna lék hvorki meira né minna en Júlíu sjálfa og þuldi upp gríðarlega óskiljanlegan texta Shakespeares án nokkura vandræða. Hún stóð sig alveg eins og snillingur og gerði foreldra sína afskaplega stolta :)  Hanna Sigga er farin að redda sér ansi vel á enskunni og er það mikill léttir fyrir okkur að vita að hún er ekki jafn einangruð og hún hefur verið.  Á morgun ætlar hún að halda kynningu fyrir bekkinn sinn þar sem hún sýnir þeim fiðrildi sem hún (með smá hjálp frá mömmu sinn) bjó til úr endurunnu heimilisrusli. Við notuðum rör, umbúðir utan af eldhúsrúllum, fréttablöð og fleira í þeim dúr. Úr þessu öllu bjó daman sem sagt til þetta líka glæsilega og litríka fiðrildi sem hún á að syna bekknum á morgun.
Við fórum loksins í Legoland um síðustu helgi en við erum búin að vera á leiðinni þangað frekar lengi. Dagurinn var alger snilld en ég sjálf hef aldrei komið í Legoland en alltaf elskað Lego þannig að ég sennilega skemmti mér ekki síður en stelpurnar þó svo ég hafi ekki mátt fara í nein spennandi tæki (ekki tekið út með sældinni að vera óléttur ): )

Í gær vaknaði fólkið í Vero beach upp við einstaklega vondan draum þegar hákarl réðst á kona á einni af aðal ströndunum í bænum. Vinnan hans Daða er án gríns steinsnar frá þessari strönd og höfum við margsinnis komið þarna. Þessi strönd liggur líka í beinu framhaldi af okkar strönd (ströndinni hérna við hverfið okkar) þannig að það er alllllllllltof stutt í þetta, uþb 3 km. Konu greyið er á spítala og lifir þetta af en vantar stórt stykki úr lærinu á henni. Ég svei mér veit ekki hvort ég fari nokkuð niður á strönd á næstunni. Allavegna fer enginn úr minni fjölskyldu í sjóinn alveg í bráð. Skellti inn link á eina af fréttasíðunum Shark bites woman in Vero Beach

Tómatsósusagan:
Um daginn kom sundlaugaumsjónamaðurinn hingað eins og svo oft áður nema i þetta skiptið þá setti hann e-ð efni í sundlaugina sem aðeins þarf að setja í á hálfs árs fresti. Við máttum nota laugina stax daginn eftir og Hanna Sigga auðvitað nýtti sér það. Þegar hún var komin uppúr tók ég eftir því að ljíósa hárið hennar var orðið vel grænt!! Ég vissi að það væri hætta á því að hárið á fólki með mjög ljóst hár sem mikið fer í sund fengi græna slikju og hef stundum séð það lítillega á hárinu á henni, en aldrei að þessu marki. Efnið sem sett var í sundlaugina hefur greinilega heft þessi áhrif og núna stóð Hanna Sigga fyrir framan mig vælandi því hún vildi auðvitað ekki að fallega hárið á henni væri grænt. Ég fór að sjálfsögðu stax og googlaði vandamálið og fékk upp fullt af niðurstöðum. Allskonar sjampó og dót sem ætti að kaupa og nota til að losna við þetta en þar sem Hanna SIgga notar ekki sjampó þá vildi ég forðast það. En lausnin sem ég rakst á oftar en einusinni var hinsvegar að setja tómatsósu í hárið á henni í 2 mín og þvo úr. Tja,,, ég átti venjulega Heinz inni í skáp og sá svo sem ekkert til fyrirstöðu að prufa það. Hanna Sigga hélt að ég væri alveg orðin rugluð og leyst ekkert á en þorði ekki að mótmæla. Mér leið nú frekar bjánalega þegar ég var að maka sósunni í hárið á henni og það læddist nú alveg að mér að ég hefði látið gabbast út í e-ð bull. Þegar við hinsvegar skoluðum herlegheitin úr 2 mín seinna átti ég ekki til orð því hárið á henni var algerlega laust við græna litinn og þar fyrir utan var það alveg sérlega fallega ljóst. Ég hef sjaldan vitað neinar hárvörur sem hafa skilað jafn mkilum sýnilegum árangri og ég hef alveg prufað nokkar þeirra :) 

Hanna sigga og fallega fiðrildið sem hún bjó til

Við innganginn í Legoland

Alveg hægt að hafa það næs í lauginni

Sæti tómatsósuhausinn


og ein óléttumynd í lokin