Ég held að það sé farið að vora í Vero Beach. Hitinn er núna hættur að fara niður fyrir 25 gráður og oft finnst mér nóg um. Ég verð að viðurkenna að ég er farin að kvíða pínulítið sumrinu því þá eiga hitinn og rakinn víst að vera agaleg. Mér finnst nærri allt fólkið hérna vera fólk að norðan sem hefur flust hingað í sólina eða þá efnað eldra fólk að norðan sem eyðir vetrinum hérna niðurfrá (hinir svokölluðu snowbirds). Ég umgengst lítið af fólki hérna sem eru innfæddir flóridabúar og allir sem ég tala við eiga það sameiginlegt að fara og eyða sumrinu fyrir norðan því hitinn hérna er allt of mikill. Fólk bókstaflega hlær að okkur þegar það heyrir að við séum frá Íslandi og ætlum að eyða sumrinu hérna í Vero, eftir hlátrinum fylgir svo yfirleitt svona "Vúbbs" svipur eins og okkur sé voðaleg vorkunn. Við búum okkur bara undir það að lifa í sundlauginni og blasta AC-ið án afláts.
En að öðru. New York var gríðarlega hressandi og mikið gaman að eyða vikunni með stelpunum í þessari yndislegu borg. Daði auðvitað sást lítið eins og venjulega og eyddi mestum tímanum í vinnunni. Við löbbuðum af okkur fæturnar nokkrum sinnum en notuðum líka lestarnar mikið. Á óskalistanum hennar Birnu var að fara í vaxmyndasafn Madame Tussauds og ég vildi fara á Broadway sýningu en að öðru leiti var tíminn að mestu óskipulagður. Við fórum og skoðuðum 9/11 minningarreitinn þar sem framkvæmdir eru ennþá á fullu. Mér fannst staðurinn alveg magnaður og ótrúlega fallegar tjarnirnar sem gerðar hafa verið þar sem turnarnir stóðu. Við nýttum okkur ókeypist ferðir Staten Island ferjunnar og rúntuðum eina ferð til Staten Island og til baka. Það var líka verslað eitthvað "örlítið" og auðvitað borðað úti eins mikið og við mögulega gátum. Uppúr allri ferðinni stóð þó sýningin Lion King sem við fórum á á Broadway. Algerlega frábær upplifun fyrir alla fjölskylduna og ekki skrítið að ennþá sé verið að sýna þessa sýningu fyrir fullum sal 15 árum eftir frumsýninguna. Við flugum aftur heim til Flórida á laugardagskvöldinu og áttum sunnudaginn í yndislegu næði hérna heima á pallinum. Það er alveg merkilegt hvað maður er fljotur að venjast góða veðrinu því við vorum öll alveg agalega ánægð að komast heim i sólina og sundfötin.
Eftir NY hafa hlutirnir svo dottið í rútínuna aftur og tíminn bara líður og líður. Utan skólans mætir Hanna Sigga í ballettinn sinn og Birna í hestana og á leikæfingar. Ég hjóla og reyni að hlaupa eins og bumban leyfir og Daði minn bara vinnur og vinnur. Um helgar er svo öll fjölskyldan dugleg að gera e-ð skemmtilegt saman eða þá bara liggja í sólinni á ströndinni eða við sundlaugina. Á morgun ætlar Daði að fara með félögum sínum að veiða hérna úti á strönd en það er alveg voðalega vinsælt sport hérna. Ég efast ekki um að þeir eigi eftir að hafa með sér allavegna eitt kælibox fyrir bjór og kannski plastpoka fyrir fiskinn sem veiðist, þó svo það sé örugglega aukaatriði :)