Monday, February 20, 2012

Nýr skóli, ballet og humar

Alltaf eru nýjar fréttir frá Flórida. Birna Luna fékk inngöngu í einn flottasta og besta einkaskóla þó víða væri leitað. Hún byrjar þar á þriðjudaginn í næstu viku og við erum öll alveg aglega spent og ánægð. Skólinn er alveg yndislegur og mjög framarlega námslega og svo bíður hann uppá allskonar tómstundir. Birna Luna er að spá í að taka þátt í leiklistastarfi og sundi og svo vill ég endilega að hún verði með í róðrarliðinu bara af því það er svo fyndið að hafa svoleiðis möguleika :) Birna er reyndar ekkert sérlega hrifin af því að þurfa að vera í skólabúningi en mér finnst það bara sætt og reynslan mín af því að hafa Hönnu Siggu í skólabúningi í hennar skóla er bara jákvæð.

Hanna Sigga byrjaði líka í ballett í vikunni og stóð sig svakalega vel. Hún bar sig svo ballerínulega að kennarinn hélt að hún hafði æft ballett áður :)

Við erum annars bara búin að hafa það gott að undanförnu. Á laugadaginn fórum við á markað sem er haldinn hérna í Vero einusinni í viku og keyptum okkur fult af ávöxtum og grænmeti á sérlega góðu verði. Við fórum líka á Humarhátíð sem var líka haldin hérna í Vero og þar fengum við að smakka 4 tegundir af humarsúpum og svo kjósa um það hver var sú besta. Hornfirðingurinn ég þykist auðvitað hafa mikið vit á humarsúpum og var nú ekkert alltof hrifin af neinni súpunni sem ég smakkaði, fyrir kurteisissakir kaus ég þó eina þeirra :) Við hefðum líka getað keypt okkur humarmáltíð sem samanstóð af riiiiiiisastórum heilum humri með maisstöngli og einhverju öðru meðlæti en vá hvað mér fannst það ekki vera girnilegt. Aðeins of flintstones-legt eitthvað.

Restinni af helginni hefur svo verið eytt við sundlaugina í gríðarlegri afslöppun :)



St Edwards, nýji skólinn hennar Birnu

Friday, February 10, 2012

Alltaf að læra e-ð nýtt

Í dag ætlar að koma hingað til mín meindýraeyðir til að spreyja fyrir maurum. Eitt af því allra mest óþolandi við það að búa hérna er að díla við allar pöddurnar sem eru hérna. Það sem fer mest í taugarnar á mér eru pínulitlir maurar sem heita held ég ghost ants en það eru reyndar óteljandi tegundir af þessu. Þeir eru allsstaðar og komast inn í allt og ef maður svo mikið sem hugsar um að skilja matvæli eftir liggjandi einhversstaðar þá eru þeir mættir. Ég fór í gær á playdate með Hönnu Siggu og var að tala við mömmuna um þessi óskemmtilegu kvikindi. Hún sagði mér að allir í Florida fá meindýraeyði til sín reglulega til að halda þessu niðri og þá á maður víst að geta meira að segja skilið matvæli eftir úti án þessu að maurarnir komi. Vá hvað það hljómar vel,,,, við höfðum strax samband og eins og ég segi þá koma þeir í dag! JIBBÍ :)

Annars gengur allt bara vel hjá okkur. Við fengum dótið okkar frá Íslandi núna á þriðjudaginn þannig að núna erum við að reyna að taka uppúr kössunum og ganga frá. Það besta við sendinguna var eiginlega að fá hjólin okkar og við mæðgurnar erum búnar að fara út að hjóla á hverjum degi síðan þau komu. Það er gaman að hjóla hérna því það eru hjólastígar víða og svo er auðvitað aldrei vindur og engar brekkur :)

Um helgina var planið að fara til Orlando í The Magic Kingdom en mér sýnist á veðurspánni að það eigi að rigna þannig að ætli maður nenni því nokkuð. Best að láta það bara ráðast.

Öll fjölskyldan slappar af við sundlaugina

Fín nýju patio húsgögnin okkar :)

Birna Luna veiddi eðlu

Thursday, February 2, 2012

Lífið í Vero Beach

Alltaf nóg að gera hjá okkur hérna í Vero Beach. Í dag fór ég með Hönnu Siggu í skólaferðalag að sjá leikritið Öskubusku. Við fórum með skólarútum (það ætlaði reyndar alveg að ganga frá mér dauðri út af loftleysi og hita) ásamt uþb 200 öðrum börnum. Leikritið var voðalega skemmtilegt og hitti auðvitað beint í mark hjá Hönnu Siggu minni sem elskar prinsessur.

Í gær lentu Daði og Birna Luna í því að það var keyrt aftaná þau þegar Daði var að skutla Birnu í skólann. Þau sluppu alveg heil en bíllinn sem við vorum á (bílaleigubíll sem betur fer) skemmdist nokkuð. Þetta var voða aksjón og löggan kom og sjúkrabíll og meira að segja slökkviliðsbíll (það fannst Birnu fyndnast (: ). Þau voru greyin á vettvangi alveg heillengi að gefa skýrslu og tala við bráðaliða þannig að Birna komst ekki í skólann fyrr en seint og um síðir. Daði var sem betur fer í 100% rétti þannig að það var ekkert mál að skila inn bílaleigubílnum og fá annan ennþá betri í staðinn :)

Annars er það margt sem maður þarf að venjast við að búa á stað eins og Vero Beach. Ég t.d þurfti að veiða dauða kanínu uppúr sundlauginni minni um daginn (ojjjjjjjjjjjj) og smala eðlu undan sófanum í stofunni í gær en Hanna Sigga greyið á erfitt með að muna að loka netinu fyrir svalahurðirnar þegar hún gengur um :)

Hanna Sigga svöl :)