Mánudagur númer 3 í Vero Beach og stelpurnar mínar eru báðar í skólanum. Dagurinn í dag er þriðji dagurinn hennar Hönnu Siggu en hingað til hefur bara gengið vel. Hún kann auðvitað ekki orð í ensku og er þess vegna mjög óörugg. Ég bjó til nokkur spjöld sem hjálpa henni að eiga samskipti við kennarann og ég vona svo sannarlega að hún verði einstaklega fljót að læra enskuna.
Á laugardaginn síðasta fóru Daði og Birna Luna uppeftir til Orlando til þess að fara í IKEA og versla það helsta sem vantaði í húsið. Þau leiguð lítinn flutningabíl svo þau gætu komið öllu fyrir sem þurfti og núna er húsið fullt af ikea kössum sem þarf að vinna úr. Ég er alveg komin með hundleið á að setja saman húsgögn :) Húsið er s,s farið að taka á sig mynd eða gerir það allavegna þegar við erum búin að setja allt saman.
Í gær fórum við svo fjölskyldan í dýragarð sem er hérna rétt hjá og áttum stórskemmtilegan dag. Við ákváðum að taka einn fjölskyldudag og ekki gera neitt leiðinlegt (eins og að versla húsgögn eða redda einhverju dóti) og eftir allt sem á hefur gengið undanfarna daga þá var það kærkomið.